Stórglæsilegt opið styrktarmót á Garðavelli laugardaginn 9.september í boði Samhentir og Vörumerking.  Mótið er haldið til styrktar öflugu afreksstarfi Leynis.

Leikfyrirkomulag er 18 holu punktakeppni með forgjöf og einnig höggleikur án forgjafar (besta skor).

Stórglæsileg verðlaun í boði:

1.-10.sæti í punktakeppni með forgjöf

1.-3.sæti í höggleik án forgjafar (besta skor)

Nándarverðlaun á par 3 holum

Lengsta „drive“ á 13.braut

Mótsgjald kr. 4.500- og skráning á golf.is