Í sumar er keppt um stigameistara Leynis í annað skipti en sá eða sú sem í lok sumars verður með flest stig úr miðvikudagsmótum (Landsbankamótaröðin og HB Granda mótaröðin) og meistaramóti Leynis verður krýndur Stigameistari Leynis 2017.
Um punktakeppni er að ræða þar sem flestir punktar í hverju móti gefa flest stig til stigameistara Leynis. Þannig gefur efsta sætið í hverju miðvikudagsmóti 200 stig og efsta sætið á hverjum degi í meistaramóti Leynis 300 stig. Frekari upplýsingar um stigagjöfina og reglugerð má finna á upplýsingatöflu í golfskála.
Verður þú stigameistari Leynis 2017 ?
Staða 10 efstu kylfingana á stigalistanum nú þegar Landsbankamótaröðin og meistaramótinu er lokið má sjá hér neðar:
| Nafn | Stig | Fjöldi móta |
| Jón Ármann Einarsson | 841 | 9 |
| Alfreð Þór Alfreðsson | 731 | 9 |
| Hallgrímur Þ Rögnvaldsson | 708 | 10 |
| Aron Bjarki Kristjánsson | 692 | 5 |
| Ingimar Elfar Ágústsson | 652 | 7 |
| Karl Ívar Alfreðsson | 635 | 8 |
| Óttar Ísak Ellingsen | 630 | 4 |
| Hannes Marinó Ellertsson | 623 | 7 |