Þorsteinn Þorvaldsson, vélstjóri lést mánudaginn 2.apríl s.l. á Heilbrigðisstofnun Vesturlands Akranesi 93 ára að aldri. 

Þorsteinn var einn af frumherjum Golfklúbbsins Leynis og stofnfélögum klúbbsins.  Þorsteinn var formaður í 13 ár samfleytt frá árinu 1967 og sat í stjórn klúbbsins í rúm 20 ár.  Þorsteinn var gerður heiðursfélagi Leynis á 20 ára afmæli klúbbsins árið 1985 og Elín Hannesdóttir eftirlifandi eiginkona hans sömuleiðis árið 1992.

Það er ekki á neinn hallað þótt fullyrt sé að með krafti sínum og dugnaði hafi hann öðrum fremur haldið klúbbnum gangandi fyrstu áratugi í starfi klúbbsins og skapað honum smám saman þann sess sem hann hefur í dag.  Þorsteinn innti af hendi mikla sjálfboðavinnu frá fyrsta degi sem fólst í uppbyggingu vallar, vallarumhirðu og vélaviðhaldi sem klúbburinn er þakklátur fyrir.

Golfklúbburinn Leynir minnist Þorsteins með miklum hlýhug og sendir eftirlifandi eiginkonu og fjölskyldu hugheilar samúðarkveðjur.