Mót nr.2 í opnu GrasTec haustmótaröðinni fór fram á Garðavelli 21. október.  Yfir 40 keppendur þátt í mótinu en leikinn var 12 holu punktakeppni að vanda.

Úrslit urðu þessi:

1.Haraldur Bjarnason GS á 29 punktum – Gisting fyrir tvo með morgunverði á hótel Northen Light Inn www.nli.is

2.Alexander Högnason á 28 punktum – Gjafabréf í versluninni Golfskálinn www.golfskalinn.is

3.Bjarni Borgar Jóhannsson GL á 27 punktum – Gjafabréf hjá Bílver

Næst holu á 14. braut:  Gestur Sveinbjörnsson GL, 201 cm.

Næst holu á 18. braut:  Bjarki Þór Pétursson GL, 252 cm.

Næsta mót fer fram laugardaginn 28. október á sjálfan kosningadaginn ! Mótanefnd GL hvetur félagsmenn GL til að taka þátt í mótaröðinni og við skulum bjóða kylfinga úr öðrum golfklúbbum velkomna.

Munið útdráttarverðlaun allra keppenda úr öllum mótum í lok mótaraðarinnar, GJAFABRÉF MEÐ GB FERÐUM AÐ ANDVIRÐI 50.000 KR.