Vatnsmótið fór fram á Garðavelli laugardaginn 30. september við góðar vallaraðstæður og ekki síður var veðrið kylfingum hagstætt en rjómablíða var meðan á mótinu stóð.  Tæplega 40 kylfingar tóku þátt og eftirfarandi eru helstu úrslit:

Punktakeppni með forgjöf

1.sæti Jón Ármann Einarsson, 37 punktar (betri á seinni níu)

2.sæti Viktor Elvar Viktorsson, 37 punktar

3.sæti Þórður Elíasson, 36 punktar

Höggleikur án forgjafar (besta skor)

1.sæti Kristvin Bjarnason, 74 högg

Nándarmælingar á par 3 holum

3.hola Bára Valdís Ármannsdóttir 3.76m

18.hola O.Pétur Ottesen, 3.24m

Golfklúbburinn Leynir óskar vinningshöfum til hamingju og þakkar keppendum fyrir þátttökuna.  Vinningshafar geta sótt vinninga á skrifstofu GL.