Golfklúbburinn Leynir og Bílver endurnýjuðu á dögunum samstarfssamning.
Bílver á Akranesi sem er umboðsaðili Honda bíla á Vesturlandi hefur undanfarin ár verið einn af bakhjörlum starfsins hjá Golfklúbbnum Leyni og um leið verið sýnilegir á æfingasvæðinu Teigum með auglýsingu af Honda CRV bílnum.
Á myndinni má sjá Guðmund Sigvaldason framkvæmdastjóra Leynis og Reynir Sigurbjörnsson eiganda Bilvers við undirritun samningsins.
Leynir færir þakkir til Bílvers fyrir gott samstarf og stuðning s.l. ár.