Tölvuþjónustan á Akranesi og Golfklúbburinn Leynir hafa skrifað undir samstarfs- og styrktarsamning er tekur til ýmiskonar tölvuþjónustu vegna reksturs klúbbsins.

Tölvuþjónustan er upplýsingatæknifyrirtæki sem sérhæfir sig í hýsingu á tölvubúnaði, rekstrarþjónustu og skýjalausnum fyrir smærri sem stærri fyrirtæki og stofnanir.

Tölvuþjónustan hefur frá stofnun árið 2014 stutt við valinn verkefni í nærsamfélaginu og verið sýnilegir með ýmsum hætti. Á Garðavelli munu kylfingar verða varir við merki Tölvuþjónustunar strax á 1.teig við upphaf golfhrings sem og víðar á svæði vallarins.

Á myndinni má sjá Guðmund Sigvaldason framkvæmdastjóra Leynis og Sigurþór Þorgilsson framkvæmdastjóra Tölvuþjónustunar við undirritun samningsins.

Golfklúbburinn Leynir færir þakkir til Tölvuþjónustunar.

Leynir Golf
Friðhelgis yfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.