Íslandsmót golfklúbba fer fram dagana 16. – 18.ágúst 2019. Leynir sendir að venju sveit til keppni í flokki 50+ karlar og spilar sveitin í 2.deild. Keppt er á golfvelli Golfklúbbsins Flúða og skipa eftirfarandi sveitina:
Birgir Arnar Birgisson
Björn Bergmann Þórhallsson
Björn H. Björnsson
Hlynur Sigurdórsson
Jóhann Þór Sigurðsson
Jón Alfreðsson
Kristinn Jóhann Hjartarson
Reynir Sigurbjörnsson
Liðstjóri: Þórður Elíasson
Val sveitar var í höndum liðstjóra en íþróttastjóri GL tilnefndi hann í upphafi sumars til að halda utan um sveitina og val hennar.
Því miður náðist ekki að manna sveit eldri kvenna frá Leyni í þetta skiptið en fulltrúar kvennanefndar reyndu án árangurs.
Golfklúbburinn Leynir sendir karla sveitinni 50+ bestu óskir um gott gengi.