Vatnsmótið sem er eitt af elstu innanfélagsmótum Leynis fór fram á Garðavelli laugardaginn 22. september við ágætis vallaraðstæður. Kalt var í veðri framan af en sólinn lét sjá sig af og til sem kylfingar voru ánægðir með. 41 kylfingur tók þátt og eftirfarandi eru helstu úrslit:
Punktakeppni með forgjöf
1.sæti Kári Kristvinsson, 42 punktar (betri á seinni níu)
2.sæti Klara Kristvinsdóttir, 42 punktar
3.sæti Gunnar Davíð Einarsson, 39 punktar
Höggleikur án forgjafar (besta skor)
1.sæti Kristvin Bjarnason, 75 högg
Nándarmælingar á par 3 holum
3.hola Bjarni Borgar Jóhannsson 2.65m
18.hola Björn Viktor Viktorsson 1.88m
Golfklúbburinn Leynir óskar vinningshöfum til hamingju og þakkar keppendum fyrir þátttökuna. Vinningshafar geta sótt vinninga á skrifstofu GL.