Stjórn Golfklúbbsins Leynis hefur tilnefnt Valdísi Þóru Jónsdóttur atvinnukylfing sem fulltrúa Leynis í kjöri íþróttamanns Akraness 2019.

Þann 6. janúar næstkomandi verður tilkynnt um val á Íþróttamanni Akraness árið 2019 og fer athöfnin fram í Íþróttahúsinu á Jaðarsbökkum að lokinni þrettándabrennu.

Opnað hefur verið fyrir kosningu í íbúagátt Akraneskaupstaðar og er kosningin opin frá 20. – 29. desember.

Stjórn Leynis hvetur félagsmenn og aðra áhugasama til þátttöku í vali á íþróttamanni Akraness.