Vatnsmótið sem er eitt af elstu innanfélagsmótum Leynis fór fram á Garðavelli sunnudaginn 22. september við ágætis vallaraðstæður. Hlýtt var í veðri en vindurinn lét kylfinga finna fyrir sér framan af degi. 40 kylfingar tóku þátt og eftirfarandi eru helstu úrslit:
Punktakeppni með forgjöf
1.sæti Hjálmur Dór Hjálmsson, 36 punktar (betri á seinni níu)
2.sæti Viktor Elvar Viktorsson, 36 punktar
3.sæti Björn Viktor Viktorsson, 35 punktar
Höggleikur án forgjafar (besta skor)
1.sæti Kristvin Bjarnason, 75 högg (betri á seinni níu)
Nándarmælingar á par 3 holum
3.hola Heimir Fannar Gunnlaugsson 0.75m
18.hola Kristvin Bjarnason 1.49m
Golfklúbburinn Leynir óskar vinningshöfum til hamingju og þakkar keppendum fyrir þátttökuna. Vinningshafar geta sótt vinninga í afgreiðslu GL frá og með mánudeginum 23.september.