Garðavöllur er í góðu standi eftir miklar rigningar síðastliðna daga.  Flatir og brautir líta vel út og eru nokkrar sandgryfjur með vatni í.  Vallarstarfsmenn slógu flatir í dag laugardag 21.september en ófært hefur verið með vélar á vellinum undanfarna daga vegna bleytu.

Við biðjum kylfinga að ganga vel um völlinn nú þegar haustið er skollið á og vallaraðstæður viðkvæmar.  Vinsamlega tilmæli að gleyma ekki að nota flatargaffalinn og gera við boltaför á flötum og setja torfusnepla í kylfuförþar sem við á.