Nú er sá árstími genginn í
garð að hætt er við næturfrosti.
Kaldar haustnætur með heiðskírum himni er ávísun á frost niður við jörðu í
morgunsárið.
Þegar hrím myndast á grasinu getur það orðið fyrir skemmdum ef gengið er á því,
sérstaklega á púttflötunum.
Félagsmenn eru beðnir að hafa varan á sér vaðandi slíkar aðstæður og fara ekki
út á Garðavöll nema kynna sér lokun vallar.
Tímabundnar lokanir vegna næturfrosts verða tilkynntar með tölvupósti og með
skiltum á 1. og 10. teig.
Mikilvægt er að hefja ekki golfleik á öðrum brautum vallarins s.s. 14. og 18.
þegar frost er í kortunum.
Upplýsingamyndband um skemmdir vegna næturfrosts má sjá í þessu myndbandi:
https://www.youtube.com/watch?v=zkoWWrHzuAg&feature=youtu.be
Með þökk fyrir tillitsemina,
Brynjar Sæmundsson
Vallarstjóri Garðavallar
GSM 8956226