Inniaðstaða GL hefur opnað og í vetur stendur félagsmönnum GL að nýta sér inniaðstöðuna til að viðhalda  púttstrokunni og golfsveiflunni.  Inniaðstaðan er sem áður í vélaskemmu GL beint upp af æfingasvæðinu Teigum.

Opnunartími inniaðstöðunnar til og með 31. mars 2018 er eftirfarandi:

Mánudagur13:00 – 18:00
Þriðjudagur13:00 – 18:00
Miðvikudagur13:00 – 18:00
Fimmtudagur13:00 – 18:00
Föstudagur13:00 – 18:00
Laugardagur13:00 – 18:00
SunnudagurLokað

 Ath. tímatafla birt með fyrirvara um breytingar vegna golfæfinga barna/unglinga.

Golfhermirinn verður áfram til afnota fyrir félagsmenn GL og aðra áhugasama gesti.  Hér fyrir neðan eru upplýsingar um verð og hvernig á að bóka tíma.

Verðskrá:

Verð pr. tíma (1 klst.): kr. 2.000-.

Hægt er að kaupa afsláttar/klippikort:

Brons, 5 tíma kort, kr. 9.500,-

Silfur, 10 tíma kort, kr. 18.000,-

Gull, 20 tíma kort, kr. 32.000,-

Platínum, 30 tíma kort, kr. 42.000.-

Það tekur um 3 klukkustundir fyrir fjóra kylfinga að leika 18 holur.  Vinsamlega greiðið gjaldið áður en farið er í golfherminn á skrifstofu GL eða hjá starfsmanni GL í vélaskemmu.  Einnig er hægt að millifæra fyrir tímann á reikning GL, 0186-26-601 kt. 580169-6869.  Hægt er að skoða lausa tíma á heimasíðu GL www.leynir.is (eða með því að ýta á þennan link https://teamup.com/ks4b32b6ed0dff53fc) og bóka tíma í kjölfarið á leynir@leynir.is eða í síma 431-2711/896-2711.