Vinsamlega kynnið ykkur eftirfarandi nú þegar haustar og veður er síbreytilegt.
Undirbúningur Garðavallar fyrir veturinn.
– Slegnar hafa verið vetrarflatir á seinni 9 holum Garðavallar (10.-18.) og tekin hola á þeim.
– Félagsmenn og kylfingar eru vinsamlegast beðnir að hlífa vetrarflötunum fyrir umferð og alls ekki slá af þessum svæðum.
– Fært verður inn á vetrarflatir þegar veður gefur tilefni til. Holum 1.-9. verður lokað í vetur.
– Allar hrífur hafa verið teknar úr sandglompum á Garðavelli og eru kylfingar beðnir um að slá ekki upp úr glompum til að koma megi í veg fyrir óþarfa sandaustur inn á flatir.
Lokun vegna næturfrosts.
– Garðavöllur verður lokaður frameftir morgni laugardaginn 6. október vegna næturfrosts. Gera má fyrir að lokað verði til kl. 10.00 og jafnvel lengur.
– Skilti eru uppi við fyrsta teig þangað til golfvöllurinn opnar. Félagsmenn eru beðnir að fara ekki af stað á 10. teig nema þeir hafi gengið úr skugga um að lokun vallar hafi verið aflétt.
Með von um góða umgengni um Garðavöll
Brynjar Sæmundsson
Vallarstjóri Garðavallar
6. október 2018