Opna haustmótaröðin hófst sunnudaginn 7. október með þátttöku 19 kylfinga. Haustmótaröðin er 9 holu punktakeppni og var þetta fyrsta mót af fjórum sem eru áætluð í október. Garðavöllur er í ágætis standi miðað við árstíma og vill mótanefnd GL hvetja sem flesta kylfinga að taka þátt ef þeir eiga þess kost.
Helstu úrslit voru eftirfarandi:
Punktakeppni með forgjöf
1.sæti Guðjón Viðar Guðjónsson GL, 20 punktar
2.sæti Reynir Þorsteinsson GL, 19 punktar
3.sæti Björn Bergmann Þórhallsson GL, 18 punktar (betri á síðustu 3 þrem holum hringsins)
Nándarmæling:
18.hola, Reynir Sigurbjörnsson GL, 4.32m
Golfklúbburinn Leynir óskar vinningshöfum til hamingju og þakkar keppendum fyrir þátttökuna. Vinningum verður komið til vinningshafa.