Húsmótið fór fram laugardaginn 4. maí á Garðavelli og tóku 50 félagsmenn þátt. Veðurblíðan lék við kylfinga og vallaraðstæður mjög góðar í upphafi sumars.
Helstu úrslit voru eftirfarandi:
Punktakeppni með forgjöf
1.sæti Einar Gíslason, 41 punktur
2.sæti Þórður Guðlaugsson, 39 punktar
3.sæti Búi Örlygsson, 38 punktar
Besta skor / höggleikur án forgjafar
1.sæti Stefán Orri Ólafsson, 72 högg
Nándarverðlaun
3.hola Reynir Sigurbjörnsson, 2,56m
18.hola Arna Magnúsdóttir, 2,31m
Golfklúbburinn Leynir þakkar öllum kylfingum fyrir þátttökuna og geta verðlaunahafar sótt verðlaun á skrifstofu GL frá og með mánudeginum 6.maí.