Á nýafstöðnu golfþingi Golfsambands Íslands sem fram fór föstudaginn 22.nóvember og laugardaginn 23.nóvember fór fram kosning nýrrar stjórnar sambandsins.
Viktor Elvar Viktorsson úr Golfklúbbnum Leyni var í kjöri og fékk góða kosningu til stjórnar. Haukur Örn Birgisson var einn í framboði til forsetasambandsins og var sjálfkjörinn.
Stjórn Leynis óskar Viktori Elvari til hamingju með kjörið og einnig öðrum sem hlutu kosningu.