Opna frístundamótið fór fram laugardaginn 11.maí með þátttöku um 65 kylfinga. Veðrið lék við kylfinga og gesti Garðavallar sem fögnuðu sömuleiðis vígslu og opnun nýrrar frístundamiðstöðvar.
Helstu úrslit:
Punktakeppni með forgjöf
1.sæti Gísli Borgþór Bogason GR, 37 punktar
2.sæti Hafþór Ægir Vilhjálmsson GL/GSG, 36 punktar (betri á seinni níu)
3.Einar Gíslason GL, 36 punktar
Höggleikur án forgjafar (besta skor)
1.sæti, Hjalti Pálmason GR, 74 högg
Nándarverðlaun (par 3 holur)
3.hola, Bergvin Þórðarson 1.24m
8.hola, Kristinn Hjartarson 3.64m
14.hola, Guðjón Theódórsson 4.09m
18.hola, Rósant Birgisson 3.79m
Golfklúbburinn Leynir þakkar keppendum fyrir þátttökuna og vinningshöfum til hamingju. Vinningshafar geta sótt vinninga á skrifstofu GL. Verkalýðsfélagi Akraness (VLFA) eru færðar þakkir fyrir góðan stuðning við mótið.