Frumherjabikarinn fór fram sunnudaginn 12.maí með þátttöku 29 félagsmanna Leynis.  Frumherjabikarinn er eitt af elstu mótum Leynis eða frá árinu 1986 og með mikla hefð þegar kemur að innanfélagsmótum Leynis.

Helstu úrslit:

Höggleikur með forgjöf

1.sæti, Þröstur Vilhjálmsson 68 högg

2.sæti, Trausti Freyr Jónsson 69 högg

3.sæti, Heimir Fannar Gunnlaugsson 72 högg

Höggleikur án forgjafar (besta skor)

1.sæti, Davíð Búason 72 högg

Nándarverðlaun (par 3 holur)

3.hola, Tómas Kárason 83cm

8.hola,Trausti Freyr Jónsson 1.54m

14.hola, Viktor Elvar Viktorsson 6.25m

18.hola, Björn Viktor Viktorsson 3.92m

Að loknum höggleik fer fram holukeppni með forgjöf þar sem 16 efstu komast áfram skv. móta skilmálum og heildarfjölda þátttakenda í mótinu.  Eftirfarandi leikir skulu fara fram og vera lokið fimmtudaginn 16.maí:

Þröstur Vilhjálmsson – Haukur Þórisson

Davíð Búason – Alfreð Þór Alfreðsson

Trausti Freyr Jónsson – Davíð Örn Gunnarsson

Heimir Fannar Gunnlaugsson – Magnús Daníel Brandsson

Guðjón Viðar Guðjónsson – Viktor Elvar Viktorsson

Búi Örlygsson – Kristleifur Brandsson

Hannes Marinó Ellertsson – Þórður Elíasson

Einar Gíslason – Tristan Freyr Traustason

Kylfingar eru vinsamlega beðnir að hafa samband við sinn mótherja og ákveða leikdag. 

Golfklúbburinn Leynir þakkar keppendum fyrir þátttökuna og vinningshöfum til hamingju.  Vinningshafar geta sótt vinninga í afgreiðslu GL þriðjudaginn 14.maí.