Garðavöllur hefur opnað inn á sumarflatir fyrir almenna umferð kylfinga. Völlurinn lítur vel út og kylfingar ánægðir með ástand hans.
Veitingastaðurinn Galito Bistro Cafe hefur sömuleiðis opnað og er opunartíminn frá kl. 8:00 alla daga. Boðið er upp á fjölbreyttar veitingar og drykki. Gestir Garðavallar og áhugasamir eru hvattir til að kynna sér nýja frístundamiðstöð og hvað nýr veitingastaður hefur að bjóða.