Frá og með mánudeginum 29. október hefur Garðavöllur lokað inn á sumarflatir og teiga.
Vetraflatir og teigar hafa verið útbúnir á seinni níu holum vallarins. Völlurinn verður áfram opin fyrir kylfinga meðan veðurfar leyfir og mun tilkynning verða send út síðar þegar og ef vellinum verður lokað í vetur.
Vinsamleg tilmæli vallarstjóra er að gæta að umgengni nú þegar haustið er skollið á og tíðarfarið fjölbreytilegt.
Bannað er að spila Garðavöll ef morgunfrost myndast fyrst á morgnana. Mikilvægt er að sólin fái tækifæri til að koma upp en flatir og önnur svæði vallarins eru sérstaklega viðkvæm við slíkar aðstæður.
Kylfingar eru minntir á að ganga vel um völlinn og setja torfusnepla aftur í kylfuför en góð umgengi lýsir innri manni.
Golfklúbburinn Leynir þakkar öllum kylfingum fyrir heimsóknir á Garðavöll í sumar og hlakkar til sjá sem flesta kylfinga sumarið 2019.