Opna haustmótaröðin fer vel af stað og í móti nr. 2 af 4 sem fram fór laugardaginn 13. október mættu 31 kylfingur. 

Garðavöllur er í ágætis standi miðað við árstíma og vill mótanefnd GL hvetja sem flesta kylfinga að taka þátt ef þeir eiga þess kost.

Helstu úrslit voru eftirfarandi:

Punktakeppni með forgjöf

1.sæti María Björg Sveinsdóttir GL, 22 punktar

2.sæti Þröstur Vilhjálmsson GL, 21 punktur (betri á síðustu 6 holum hringsins)

3.sæti Rafnkell K.Guttormsson GL, 21 punktur (betri á síðustu 3 holum hringsins)

Nándarmæling:

18.hola, Haukur Þórisson GL, 1.92m

Golfklúbburinn Leynir óskar vinningshöfum til hamingju og þakkar keppendum fyrir þátttökuna.  Vinningum verður komið til vinningshafa við fyrsta tækifæri.

Leynir Golf
Friðhelgis yfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.