Golfklúbburinn Leynir tók á móti styrk frá Guðna Erni Jónssyni s.l. laugardag 7.júlí þegar opna Guinness golfmótið var haldið.  Guðni Örn varð nýlega 60 ára og fagnaði á sama tíma 30 starfsafmæli sem tæknifræðingur og við það tilefni óskaði hann eftir að þeir sem vildu gleðja hann með gjöfum gæfu í staðinn styrk sem myndi renna til barna og unglingastarfs klúbbsins.  Golfklúbburinn Leynir vill við þetta tilefni færa Guðna Erni kærar þakkir fyrir stuðninginn.

Á myndinni má sjá Guðna Örn og golfvini hans þegar styrkurinn var afhentur og tók Guðmundur Sigvaldason framkvæmdastjóri Leynis við styrknum fyrir hönd Leynis.

Leynir Golf
Friðhelgis yfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.