Opna miðnæturmót Norðuráls fór fram á Garðavelli laugardaginn 9.júní.  Vallaraðstæður voru ágætar þrátt fyrir smá rigningu sem kylfingar fengu meðan á mótinu stóð.  Mótið var ræst kl. 20 af öllum teigum samtímis með þátttöku um 44 kylfinga.

Helstu úrslit voru eftirfarandi

Punktakeppni með forgjöf 0-10,1

1.sæti Birgir Arnar Birgisson GL, 37 punktar

2.sæti Kristján Kristjánsson GL, 36 punktar

3.sæti Pétur Vilbergur Georgsson GL, 34 punktar

Punktakeppni með forgjöf 10,2-24/28

1.sæti Allan Freyr Vilhjálmsson GL, 41 punktur

2.sæti Einar Pálsson GB, 33 punktar (betri á seinni níu)

3.sæti Þröstur Vilhjálmsson GL, 33 punktar (betri á seinni níu)

Nándarmælingar á par 3 holum

3.hola Halldór B Hallgrímsson GL, 6.84m

8.hola Birgir Arnar Birgisson GL, 76cm

14.hola Sigurður Elvar Þórólfsson GOT/GL, 5.3m

18.hola Þröstur Vilhjálmsson GL, 2.99m

Golfklúbburinn Leynir óskar vinningshöfum til hamingju og þakkar kylfingum fyrir góða þátttöku og stuðning við starf klúbbsins sem og Norðurál fyrir góðan stuðning við mótið.

Vinningshafar geta sótt vinninga á skrifstofu GL mánudaginn 11.júní.

Leynir Golf
Friðhelgis yfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.