Opnu Norðuráls mótin fara fram á Garðavelli laugardaginn 9.júní og byrjum við á Texas móti um morguninn kl. 8:00 og svo endum við á miðnætur móti sem hefst kl. 20:00.

Opna Texas Scramble mótið hefst kl. 8:00 og er ræst út til kl. 13:00.  Mótið er alltaf vinsælt og vel sótt með glæsilegum verðlaunum fyrir 1.-3.sæti og nándarverðlaunum á par 3 holum.  Mótsgjald er kr. 4.500-

Opna miðnætur mótið er punktakeppni með forgjöf og spilað í tveimur flokkum: 0-10,1 og 10,2-24/28.  Miðnætur mótið er einnig mjög vinsælt, frábær verðlaun og nándarverðlaun á par 3 holum.  Ath. ræst er út af öllum teigum kl. 20:00 stundvíslega og því takmarkaður keppendafjöldi eða 92 kylfingar.  Mótsgjald er kr. 4.500-

Skráning í mótin er á golf.is