Félagsfundur var haldinn í golfskála Golfklúbbsins Leynis (GL) mánudagskvöldið 29.maí 2017.  Tilefni fundarins var að kynna félagsmönnum stöðu húsnæðismála og teikningar af nýrri Frístundamiðstöð við Garðavöll ásamt því að bera undir félagsfund heimild til stjórnar GL um að ganga til samninga við Akraneskaupstað um verkefnið Frístundamiðstöð við Garðavöll.

Þórður Emil formaður GL setti fundinn og fór lauslega yfir tilgang fundar og stöðu húsnæðismála.  Guðmundur framkvæmdastjóri GL tók því næst til máls og fór yfir verkefnið sem stjórn hefur unnið að síðastliðinn tvö ár.  Guðmundur kynnti sömuleiðis tillögur að teikningum frístundamiðstöðvar sem Akraneskaupstaður hyggst byggja í samráði við GL þar sem núverandi golfskáli stendur. 

Kynnta tillögu hefur Halldór Stefánsson unnið fyrir stjórn GL og er þar um að ræða metnaðarfullar teikningar af 961m2 húsi sem skiptist í 657m2 jarðhæð og 304m2 kjallara.  Í kjallara er gert ráð fyrir inniaðstöðu fyrir golfiðkun s.s. púttsvæði og golfhermum ásamt að stöðu fyrir golfbíla.  Jarðhæðin samanstendur að veislusal fyrir allt að 200 manns í sæti, setustofu, eldhúsi, salernum, búningsherbergjum, skrifstofum, fundarherbergi og afgreiðslu fyrir golfvöll.  Halldór fór lauslega yfir byggingarlýsingu á húsnæðinu og svaraði spurningum félagsmanna.

Frístundamiðstöðin er hugsuð fyrir starfssemi GL og gesti Garðavallar sem og Akraneskaupstað og aðildarfélög ÍA.  Akraneskaupstaður mun eiga húsnæðið og GL mun hafa umsjón með því og sjá um rekstur þess.  Áætlað er að bjóða verkefnið út um mitt sumar og hefja framkvæmdir á haustmánuðum að loknu golftímabili.  Áætlanir gera svo ráð fyrir að taka jarðhæð í notkun vorið 2018 og að framkvæmdum við kjallara og annan fullnaðarfrágang verði lokið í desember 2018.

Félagsmenn sem mættir voru á fundinn voru áhugasamir og spurðu spurninga sem formaður og framkvæmdastjóri svöruðu af kostgæfni.  Fram kom í kynningu Guðmundar að mikil vinna hefði verið unnin síðastliðinn tvö ár hvað varðar áætlana- og tillögugerð ýmiskonar sem hefði skilað sér í faglegri vinnu og því að bæjarráð og bæjarstjórn Akraneskaupstaðar hefur samþykkt að ganga til samninga við GL um verkefnið.

Í lok kynningar framkvæmdastjóra og að loknum fyrirspurnum félagsmanna bar formaður GL upp til atkvæðagreiðslu heimild til stjórnar GL um að ganga til samninga við Akraneskaupstað.  Félagsfundurinn samþykkti að heimila stjórn GL áframhaldandi vinnu við að ljúka samningum við Akraneskaupstað.

Í lok félagsfundar fór framkvæmdastjóri yfir rekstur GL og kom fram að völlurinn hefði komið vel undan vetri en sökum veðurs í lok apríl og byrjun maí hefði völlurinn opnað seinna en áætlað var.  Framkvæmdir við 4. flötina gengu vel og munu án efa bæta leik kylfinga og auka skemmtun félagsmanna og gesta.  Endurnýjun véla hefur tekist vel undanfarin ár og er unnið að frekari endurnýjun véla um þessar mundir. Fjölgun félagsmanna  er um tæp 8% sé tekið mið af stöðunni á sama tíma fyrir ári.  Spilaðir hringir eru milli 30-40% færri og má án efa tengja það því að völlurinn opnaði seinna en gert var ráð fyrir og að veður var óhagstætt. Birgir Leifur Hafþórsson nýr íþróttastjóri hefur farið vel af stað og með góðri aðstoð golf leiðbeinenda sem með honum starfa hefur íþróttastarfið verið blómlegt undanfarnar vikur sem skilaði sér í góðum árangri unglinga um síðastliðna helgi á fyrsta GSÍ móti sumarsins.  Einnig kom fram að fjárhagur GL er sterkur um þessar mundir og áætlanir að standast.  Samstarfsaðilinn sem hefur með veitingasölu í golfskála að gera hefur byrjað vel og gestir ánægðir með vöruframboð.

Vel var mætt á félagsfundinn og má áætla að fundinn hafi sótt milli 40-50 félagsmenn.  Fundi var slitið rúmlega um kl. 21:15.