Mikill fjöldi gesta mætti við vígslu og opnun Frístundamiðstöðvar laugardaginn 11.maí.

Boðið var upp á kaffi og köku ásamt pylsum og tilheyrandi fyrir gesti.

Gestir fengu að kynna sér golf með golfkennurum og unglingum GL ásamt því að kynna sér aðstöðu og hvað ný Frístundamiðstöð hefur að bjóða.

Sannarlega vel heppnaður dagur þar sem veðrið lék við gesti og sólin skein glatt.