Aðalfundur Golfklúbbsins Leynis verður haldinn fimmtudaginn 3. desember nk. Í ljósi aðstæðna mun fundurinn vera rafrænn í gegnum fjarfundarbúnað.
Gögn fundarins:
Leiðbeiningar vegna fjarfundar GL: http://leynir.is/wp-content/uploads/2020/12/Leikreglur-á-rafrænum.pdf
Tillögur að lagabreytingum: http://leynir.is/wp-content/uploads/2020/11/Lög-GL-breytingnatillaga.pdf
Skýrsla stjórnar með ársreikningi 2020 og fjárhagsáætlun 2021: http://leynir.is/wp-content/uploads/2020/12/skýrsla-stjórnar-2020-3.12.20.pdf
Fundurinn hefst kl. 20:00 og er dagskrá fundarins sem hér segir:
- Skýrsla stjórnar.
- Lagðir fram endurskoðaðir reikningar.
- Umræða um skýrslu stjórnar og reikninga. Reikningar bornir undir atkvæði.
- Lagðar fram tillögur um lagabreytingu. Umræður, tillögurnar bornar undir atkvæði.
- Stjórn leggur fram fjárhagsáætlun 2020-2021 ásamt tillögum um félagsgjöld. Umræður, áætlunin og tillaga stjórnar bornar undir atkvæði.
- Kosning stjórnar og varamanns í stjórn skv. 6. gr.
- Kosning tveggja endurskoðenda skv. 6. gr. (og einn til vara)
- Önnur mál.
Þeir félagsmenn sem hafa áhuga á því að sitja aðalfund GL eru vinsamlegast beðnir um að senda tölvupóst á netfangið leynir@leynir.is og skrá sig til þátttöku. Á fundardegi verður sent rafrænt fundarboð til þeirra sem tilkynnt hafa þátttöku. Með þessum hætti getum við tryggt að sem flestir félagsmenn geti tekið þátt í aðalfundinum á þessum sérkennilegu tímum.
Stjórn GL