Föstudaginn 26. apríl s.l. fór hluti stjórnar og framkvæmdastjóri GL á fund með bæjaryfirvöldum Akraneskaupstaðar. Á fundinum lögðu forsvarsmenn GL fram minnisblað þar sem óskað var eftir samningi um landsvæði til stækkunar á Garðavelli úr 18 holum í 27 holur.

Stjórn og framkvæmdastjóri GL þakka bæjarfulltrúum og embættismönnum fyrir góðan fund og þátttöku þeirra í gagnlegum umræðum. Nú hefur bæjarráð Akraneskaupstaðar falið skipulags- og umhverfisráði að taka við tillögunni og móta næstu skref í stjórnsýslulegri meðferð. Tækifæri samfélagsins eru mikil og er GL til í að takast á við þetta stóra verkefni með öllum hagsmunaaðilum málsins. Það er ósk okkar í GL að við náum samningi um landnýtinguna í mars 2025 en þá fagnar GL 60 ára afmæli.

Drögin að stækkun Garðavallar sem kynnt voru á fundinum og sjá má á myndum í meðfylgjandi frétt eru fyrst og fremst ætlað að sýna fram á hvaða landsvæði GL þarf til stækkunar. Leiðarljós verkefnisins var að ná fram markmiðum um aukin gæði, útvíkkun á útivistarsvæðum og bætt aðgengi fyrir alla með öflugu stígakerfi sem tengir saman byggð og fjölnota útivistarsvæði.

Drögin eru ekki endanlega hönnun að stækkun eða legu vallarins heldur ætluð til umræðu og ákvörðunartöku um framhaldið.

Það er ljóst að hugur stjórnar GL er skýr og eindreginn vilji fyrir því að nýta meðbyrinn í hreyfingunni og þá lykilstöðu sem Akranes er í. Að stækka Garðavöll um 9 holur er langhlaup en mikilvægt er að fá svör við samningumsleitan GL hið fyrsta svo unnt sé að fara í aðgerðar- og tímaáætlanir til framtíðar.