Trésmiðjan Akur ehf. er rótgróið fyrirtæki á Akranesi sem leggur áherslu á að sinna almennri byggingarstarfsemi og trésmíðaþjónustu. Akurnesingar og fleiri ættu að þekkja vel til fyrirtækisins þar sem Akur hefur starfað í yfir 60 ára og þjónað mörgum íbúum og samfélaginu til margra ára.

Nýverið var undirritaður styrktarsamningur á milli Akurs og Golfklúbbsins Leynis til þriggja ára. Með samningnum vilja forsvarsmenn Trésmiðjunnar Akurs ehf. styrkja myndarlega við barna,- unglinga- og afreksstarf hjá Golfklúbbnum Leyni. Stjórn Leynis færir Trésmiðjunni Akri ehf. bestu þakkir fyrir og hlakkar til samstarfsins.