Af ófyrirsjáanlegum ástæðum þarf að færa aðalfund Golfklúbbsins Leynis til þriðjudagssins 11. desember í stað þriðjudagssins 4. desember 2018 sem áður var búið að birta.  Aðalfundurinn fer fram kl. 19:30 í hátíðarsal ÍA á Jaðarsbökkum. 

Dagskrá: Hefðbundin aðalfundarstörf samkvæmt 8.gr.laga Golfklúbbsins Leynis.

Óskað er eftir framboðum til stjórnar og nefnda og skulu framboð berast fyrir 27. nóvember næstkomandi. Áhugasamir skulu senda tölvupóst á leynir@leynir.is