Stjórn Leynis boðar til fundar um stefnumótun og rýni á starfsemi klúbbsins n.k. mánudag 12.nóvember í hátíðasal ÍA á Jaðarsbökkum.  Fundurinn byrjar kl. 19 og er fyrirhugað að bjóða upp á léttar veitingar s.s. kaffi, gos, samlokur og þess háttar.

Stjórn Leynis vill hvetja sem flesta félagsmenn að mæta og taka þátt í að móta starf klúbbsins.  Vinsamlega láttu okkur vita á netfangið leynir@leynir.is ef þú ætlar að mæta svo hægt sé að undirbúa fundinn frekar.