Heilbrigðisráðuneytið hefur heimilað golfleik en eingöngu ef kylfingar bóki rástíma í þeim tilgangi að forðast biðraðir og hópamyndanir. Í framhaldi af því hefur verið opnað fyrir skráningu í gegnum Golfbox. Fyrir þá félagsmenn sem ekki hafa gengið frá sínum félagsgjöldum bendum við á að það þarf að ganga frá greiðslu í Nórakerfinu til að fá aðgang að Golfboxinu eða sitja sig í samband við framkvæmdastjóra GL.

Garðavöllur er opinn fyrir félagsmenn í Leyni samkvæmt neðangreindum reglum:

  • Holur 1 til 9 eru LOKAÐAR FYRIR ALLRI UMFERÐ
  • Holur 10 til 18 eru opnar inn á VETRARFLATIR og VETRARTEIGA
    • ATH ! að aðeins rauðir og gulir vetrarteigar eru í notkun og því ALLIR AÐRIR TEIGAR lokaðir.  Vinsamlegast virðið það.
  • Færa skal bolta af braut og út í röff eða slá bolta af tíi af braut til að fyrirbyggja skemmdir á brautum meðan svörðurinn er mjúkur og blautur.
  • Setjið torfusneppla í kylfufar og stigið niður.
  • Allar sumarflatir eru girtar af og lokað ALLIR umferð annarra en vallarstarfsmanna.
    • Vinsamlegast virðið það og farið ekki innfyrir girt svæði.

Við viljum þó benda kylfingum á að enn er aðeins smá frost í jörðu þó yfirborð grassvarðarins sé farinn að þiðna og mýkjast verulega.  Við Þessar aðstæður er yfirborðið oft blautt og viðkvæmt og því full ástæða til að ganga um Garðavöll með nærgætni.