Aðalfundur Golfklúbbsins Leynis verður haldinn miðvikudaginn 24. Nóvember. Í ljósi aðstæðna mun fundurinn vera rafrænn í gegnum fjarfundarbúnað.
Leiðbeiningar vegna fjarfundar GL:
Skýrsla stjórnar með ársreikningi 2021 og fjárhagsáætlun 2022.
Fundurinn hefst kl. 20:00 og er dagskrá fundarins sem hér segir.
- Skýrsla stjórnar.
- Lagðir fram endurskoðaðir reikningar.
- Umræða um skýrslu stjórnar og reikninga. Reikningar bornir undir atkvæði.
- Lagðar fram tillögur um lagabreytingu. Umræður, tillögurnar bornar undir atkvæði.
- Stjórn leggur fram fjárhagsáætlun 2020-2021 ásamt tillögum um félagsgjöld. Umræður, áætlunin og tillaga stjórnar bornar undir atkvæði.
- Kosning stjórnar og varamanns í stjórn skv. 6. gr.
- Kosning tveggja endurskoðenda skv. 6. gr. (og einn til vara)
- Önnur mál.
Þeir félagsmenn sem hafa áhuga á því að sitja aðalfund GL eru vinsamlegast beðnir um að senda tölvupóst á netfangið leynir@leynir.is fyrir kl. 18:00 og skrá sig til þátttöku
Stjórn GL