Kæru félagsmenn GL
Aðalfundur Golfklúbbsins Leynis verður haldinn miðvikudaginn 24. nóvember nk. á Garðavöllum.
Fundurinn verður rafrænn og notast verður við fjarfundarbúnað TEAMS. Þeir féalgsmenn sem hafa hug á að taka þátt í fundinum eru beðnir um að senda póst á leynir@leynir.is og skrá sig til leiks 🙂
Fundurinn hefst kl. 20:00 og er dagskrá fundarins sem hér segir:
- Skýrsla stjórnar.
- Lagðir fram endurskoðaðir reikningar.
- Umræða um skýrslu stjórnar og reikninga. Reikningar bornir undir atkvæði.
- Lagðar fram tillögur um lagabreytingu. Umræður, tillögurnar bornar undir atkvæði, (engar tillögur bárust).
- Stjórn leggur fram fjárhagsáætlun 2021-2022 ásamt tillögum um félagsgjöld. Umræður, áætlunin og tillaga stjórnar bornar undir atkvæði.
- Kosning stjórnar og varamanns í stjórn skv. 6. gr.
- Kosning tveggja endurskoðenda skv. 6. gr. (og einn til vara)
- Önnur mál.
Stjórn Golfklúbbsins Leynis.