Golfklúbburinn Leynir og Vörður tryggingar hf. gengu í gærdag, 19. júní, frá myndarlegum samstarfssamning til næstu þriggja ára.

Tryggingarfélagið Vörður hefur einmitt verið mjög sýnilegt á vettvangi golfsins undanfarin árin, og nægir þar að nefna árlegan golfregluleik félagsins sem hefur notið mikilla vinsælda meðal kylfinga. Félagið býður einnig upp á sérstaka Golfvernd sem er sniðin að kylfingum og iðkun þeirra á golfvöllum hérlendis sem ytra. Auk þess hefur félagið verið einn af aðalbakhjörlum Forskots afrekssjóðs, sem stutt hefur myndarlega við íslenska atvinnukylfinga á alþjóðlegum vettvangi.

Stjórn GL fagnar samkomulaginu við Vörð tryggingar hf. og hlakkar til samstarfsins til næstu ára.

Mynd tekin af formanni GL, Hróðmari Halldórssyni og Þórunni Ingu Ingjaldsdóttur, framkvæmdastjóra sölu og þjónustu hjá Verði tryggingum, við undirritun í gær.

Leynir Golf
Friðhelgis yfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.