Golfklúbburinn Leynir leitar að öflugum liðsmanni í starf íþróttastjóra.
Íþróttastjóri gegnir mikilvægu hlutverki í starfi GL og hefur umsjón með þjálfun og keppni kylfinga í klúbbnum.
GL er ört stækkandi klúbbur sem hefur stórbætt aðstöðu sína fyrir kylfinga og starfsfólk og býður upp á mörg góð tækifæri til frekari tekjuöflunar fyrir öflugan aðila.
Um 100% starf er að ræða en sökum eðli starfs er álag mismunandi milli árstíða.
Starfssvið:
- Ábyrgð á skipulagi og framkvæmd þjálfunar barna, unglinga, afrekskylfinga og ungmenna á golf afreksbraut FVA.
- Stuðningur við börn, ungmenni og afrekskylfinga GL á mótaröðum GSÍ.
- Ábyrgð á þjónustu við almenna kylfinga á sviði þjálfunar.
- Stefnumörkun og uppbygging á kennslu, þjálfun og fleiri þáttum með það að markmiði að fjölga félagsmönnum og efla barna-, ungmenna- og afreksstarf í samræmi við stefnu um fyrirmyndarfélag ÍSÍ sem GL er aðili að.
- Upplýsingagjöf og samstarf við samstarfsfólk, stjórn og nefndir GL.
- Önnur tilfallandi störf þ.m.t. mótahald fyrir börn og ungmenni, utanumhald í Sportabler, nýliðanámskeið, sumarnámskeið fyrir börn, val á liðsstjórum og keppnissveitum GL og miðlun upplýsinga á samfélagsmiðlum.
- Starf íþróttastjóra heyrir undir framkvæmdastjóra GL.
Menntunar- og hæfnikröfur:
- PGA golfkennari, PGA nemi eða annað sambærilegt nám, æskilegt.
- Reynsla af sambærilegu starfi, kostur.
- Liðsmaður, leiðtogahæfni, frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð.
- Jákvæðni, þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum.
- Geta til að tjá sig í ræðu og riti.
Umsókn skal fylgja ferilskrá umsækjanda. Senda skal umsókn á netfangið rakel@leynir.is
Nánari upplýsingar um starfið veitir framkvæmdastjóri Leynis í síma 899 1839 og á netfanginu rakel@leynir.is
Umsóknarfrestur er til og með 21. ágúst.
Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál.
Stjórn Golfklúbbsins Leynis