Kæru félagsmenn,
Aðalfundur GL fer fram fimmtudaginn 24. nóvember nk. kl. 19:30 á Garðavöllum.
Dagskrá aðalfundar er sem hér segir:
- Skýrsla stjórnar
- Lagðir fram endurskoðaðir reikningar.
- Umræða um skýrslu stjórnar og reikninga. Reikningar bornir undir atkvæði.
- Lagðar fram tillögur um breytingu laga og reglugerða. Umræður, tillögurnar bornar undir atkvæði.
- Stjórn leggur fram fjárhagsáætlun næsta starfstímabils ásamt tillögum um félagsgjöld. Umræður, áætlunin og tillaga stjórnar bornar undir atkvæði.
- Kosning formanns, stjórnar og varamanns í stjórn skv. 6. gr.
- Kosning tveggja skoðunarmanna reikninga, auk eins til vara skv. 6. gr.
- Önnur mál.
Gögn fyrir fundinn verða sett inn á heimasíðu klúbbsins að morgni 24. nóvember.
Væri gaman að sjá ykkur sem flest 🙂
Kær kveðja, stjórn GL.