Kæru félagsmenn, innheimta félagsgjalda fyrir árið 2022 er hafin. Hér má finna upplýsingar og leiðbeiningar um skráningu og greiðslufyrirkomulag:

Greiðsla félagsgjalda fer fram í gegnum kerfið Sportabler. Mælst er til þess að félagsmenn skrái sjálfir sínar greiðslur fyrir árið í gegnum kerfið. 

Hér má finna gjaldskrá fyrir árið, sem samþykkt var á aðalfundi félagsins 24. nóvember sl. https://leynir.is/um-klubbinn/gjaldskra/

​Þeir félagsmenn sem greiða fjaraðildargjald, nýliðagjald I og nýliðagjald II geta ekki skráð sig sjálfir í Sportabler og verða að hafa samband við skrifstofu um skráningu með því að senda tölvupóst á netfangið: leynir@leynir.is

Leiðbeiningar um skráningu og greiðslu félagsgjalda:

  • Farið inn á https://www.sportabler.com/shop/ia/leynir – Hér má finna heimasvæði GL inn á Sportabler. Einnig er hægt að fara inn á www.ia.is og finna hnappinn: ÍA – Sportabler, skráning og greiðsla. Félagsmenn skrá sig inn með rafrænum skilríkjum.
  • Því næst er smellt á – Innskrá í Sportabler – Þegar farið er inn í fyrsta skipti er smellt á – Nýskrá – annars smellt á – Innskrá.
  • Nú koma fram gjaldskrárflokkar og sá flokkur valinn sem á við með því að smella á hnappinn – Kaupa -.
  • Þá kemur upp greiðslusíða þar sem hægt er að velja um greiðsluleið. Boðið er upp á að dreifa greiðslum í allt að 6 skipti, hvort sem valið er greiðsluseðlar eða greiðslukort. Miðað er við að síðasta greiðslan sé ekki síðar en í október 2022.