Aðalfundur Golfklúbbsins Leynis verður haldinn miðvikudaginn 24. Nóvember. Í ljósi aðstæðna mun fundurinn vera rafrænn í gegnum fjarfundarbúnað.

Leiðbeiningar vegna fjarfundar GL:

Skýrsla stjórnar með ársreikningi 2021 og fjárhagsáætlun 2022.

Fundurinn hefst kl. 20:00 og er dagskrá fundarins sem hér segir.

  • Skýrsla stjórnar.
  • Lagðir fram endurskoðaðir reikningar.
  • Umræða um skýrslu stjórnar og reikninga. Reikningar bornir undir atkvæði.
  • Lagðar fram tillögur um lagabreytingu. Umræður, tillögurnar bornar undir atkvæði.
  • Stjórn leggur fram fjárhagsáætlun 2020-2021 ásamt tillögum um félagsgjöld.  Umræður, áætlunin og tillaga stjórnar bornar undir atkvæði.
  • Kosning stjórnar og varamanns í stjórn skv. 6. gr.
  • Kosning tveggja endurskoðenda skv. 6. gr. (og einn til vara)
  • Önnur mál.

Þeir félagsmenn sem hafa áhuga á því að sitja aðalfund GL eru vinsamlegast beðnir um að senda tölvupóst á netfangið leynir@leynir.is fyrir kl. 18:00 og skrá sig til þátttöku

Stjórn GL