Æfingasvæðið

Leynir hefur yfir að ráða góðu, yfirbyggðri æfingaaðstöðu sem kallast Teigar en þar geta kylfingar æft í skjóli óháð veðrum og vindum allt árið um kring. Æfingaaðstaðan er flóðlýst með 12 bása þar sem kylfingar geta slegið af gervigrasmottum. Kylfingar geta æft öll golfhögg, hvort sem það eru stutt vipp úr glompu eða löng högg með trékylfu. 

Afgreiðsla í boltavél sem staðsett er á æfingasvæði fer fram í afgreiðslu veitingasölu í golfskála.

Púttflöt er við golfskála og þar geta kylfingar æft púttinn í fjölbreyttu landslagi púttflatar.

Vippsvæði er við hlið bílastæðis en þar geta kylfingar æft vippinn af 50m færi.

6 holu, par 3 æfingavöllur er við aðkomu að golfvallarsvæði Leynis og hentar jafnt byrjendum sem lengra komnum.

Inniaðstaða er í kjallaranum í Frístundamiðstöðunni Garðavöllum sem er öllum félagsmönnum aðgengileg. Þar geta félagsmenn komið og æft, opið er frá 8-23.  Félagsmenn geta bókað tíma í golfheri á www.boka.leynir.is  Kjallarinn er með aðgangsstýringu og til að fá kóða setja félagsmenn sig í samband við klúbbinn í gegnum leynir@leynir.is