Golfsumarið 2026 er hafið og kylfingar farnir að njóta Garðavallar. Völlurinn kemur heilt yfir vel undan vetri og er mikill gróandi þessa dagana. Vallarnefnd vill koma á framfæri þökkum til allra þeirra fjölmörgu sjálfboðaliða sem lögðu hönd á plóg á sjálfboðaliðadögum sem haldnir voru á vormánuðum sem og þeirra einstaklinga sem mæta reglulega til að aðstoða Einar Gest og hans vallarstarfsmannateymi. Saman tryggðu vallarstarfsmenn og sjálfboðaliðar að hægt var að opna Garðavöll um miðjan maí við góðar aðstæður.

Vallarnefnd hefur það hlutverk að vinna að þróun Garðavallar í náinni samvinnu við stjórn, framkvæmdastjóra og vallarstjóra. Unnið er eftir ákveðnu verkplani sem reynt er að fylgja eftir eins og kostur er hverju sinni, með hliðsjón af fjármunum, veðurfari og öðrum þáttum. Helstu verkefni sem nefndin og vallarstarfsmenn hafa unnið að í vetur eru eftirfarandi:

  • Áframhaldandi vinna við vökvunarkerfi. Unnið hefur verið að því undanfarin ár að koma vökvunarkerfi í flatir og teiga á Garðavelli. Á vormánuðum var vökvunarkerfi sett í kringum 7. flöt. Nú þegar hefur vökvunarkerfi verið sett í kringum 4. flöt, 7. flöt og 11. flöt sem og við allar nýframkvæmdir við teiga.
  • Nýir teigar. Undanfarin ár hafa ýmsir teigar vallarins verið endurbyggðir. Í vetur hefur verið unnið að undirbúningi að sáningu gula teigsins á 7. braut. Áætlað er að framkvæmdum verði lokið á næstu vikum.
  • Innleiðing gróðurplans fyrir Garðavöll. Hluti af gróðurplaninu er að fjarlægja dauð og ljót tré sem gert hefur verið í vetur. Nýjum trjám verður komið fyrir í samræmi við ákveðið plan þar sem klúbburinn nýtur ráðgjafar og liðsinnis sérfræðings.
  • Rafmagn austur fyrir Leynislæk. Rafmagni var komið austur fyrir Leynislækinn í vetur svo einnig megi nota slátturróbóta þeim megin vallarins.
  • Ruslastöðvar. Skipulagðar hafa verið ruslastöðvar á tveimur stöðum á vellinum, milli 4. flatar og 5. teigs annars vegar og við 14. teig hins vegar. Framkvæmdum verður haldið áfram á næstu vikum og þær fullunnar.
  • Almennt viðhald vallar. Vallarstarfsmenn hafa unnið að viðgerðum á litlum álagssvæðum við teiga, flatir og annars staðar, snyrt göngustíga — allt í þeim tilgangi að gera völlinn snyrtilegri og fallegri.

Mörg stór verkefni eru framundan hjá Leyni sem vallarnefnd mun koma að. Á komandi mánuðum og árum verða eftirfarandi verkefni helstu áherslumál vallarnefndar:

  • Stækkun Garðavallar. Á vormánuðum var undirrituð viljayfirlýsing við Akraneskaupstað um skipulagningu á stækkun vallarins. Um er að ræða mjög umfangsmikið verkefni sem mun krefjast náins samráðs við bæjaryfirvöld. Þetta er án efa stærsta verkefni sem vallarnefnd og klúbburinn hafa staðið frammi fyrir um langa hríð.
  • Endurbygging á 18. holu. Kominn er tími á að endurbyggja flötina, braut og teiga á 18. holu. Stefnt er að því að hefja framkvæmdir í haust og ljúka þeim sumarið 2028. Nánara fyrirkomulag framkvæmdanna verður kynnt þegar nær dregur.
  • Innleiðing gróðurplans. Áframhaldandi innleiðing gróðurplans. Stefnt er að því að gróðursetja um 150 tré á Garðavelli á ári hverju næstu árin.
  • Vökvunarkerfi. Áfram verður unnið að því að koma vökvunarkerfi í flatir vallarins.
  • Uppbygging teiga. Teigar verða uppfærði hér og þar um völlinn eins og efni standa til hverju sinni. Vökvunarkerfi verður sett niður samhliða öllum nýframkvæmdum við teiga.
  • Tækjaflota haldið við. Mikilvægt er að halda tækjum við með reglulegum hætti. Leynir hefur metnaðarfull markmið í þeim efnum og hefur á s.l. 5 árum fjárfest í um 100 m.kr. í vélum og tækjum.

Garðavöllur er einn glæsilegasti golfvöllur landsins. Það er á ábyrgð okkar allra að ástand hans haldist gott og hann sé snyrtilegur. Með auknu álagi á völlinn reynir meira á þolgæði hans. Vallarnefnd vill hvetja kylfinga til að ganga vel um völlinn og hafa það að markmiði sínu að ástand hans verði ögn betra eftir að leik er lokið en það var áður en leikur hófst. Í þessu skyni minnir vallarnefnd kylfinga góðfúslega á eftirfarandi grundvallaratriði:

  • Ganga frá ónýtum tíum í þar til gerð box á teigum.
  • Setja ávallt torfusneppla í torfuför.
  • Gera við að minnsta kosti eitt boltafar á hverri flöt.
  • Raka ávallt sandglompur og setja hrífur ofan í sandglompur.

Tileinki allir kylfingar sér framangreint auðveldar það vallarstarfsmönnum verk sín og gerir þeim kleift að setja meiri orku í að bæta gæði vallarins almennt kylfingum og gestum til ánægju.

 

Að gefnu tilefni minnir vallarnefnd að lokum kylfinga eindregið á að henda níkótínpúðum ekki á völlinn. Mikið hefur borið á notuðum níkótínpúðum um allan völl í vor og er slíkur sóðaskapur óviðunandi.

Vallarnefnd óskar kylfingum öllum gleðilegs golfsumars og vonar að allir geti notið Garðavallar þetta sumarið.

 

Vallarnefnd Garðavallar

 

 

 

 

Your Title Goes Here

Your content goes here. Edit or remove this text inline or in the module Content settings. You can also style every aspect of this content in the module Design settings and even apply custom CSS to this text in the module Advanced settings.

Leynir Golf
Friðhelgis yfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.