Aðalfundur Golfklúbbsins Leynis fer fram í dag fimmtudaginn, 23. nóvember á Garðavöllum.

Súpa í boði að hætti Nítjándu kl. 18:00 en fundurinn hefst kl. kl. 18:30 á Garðavöllum.

Dagskrá aðalfundar:

1. Skýrsla stjórnar

2. Lagðir fram endurskoðaðir reikningar.

3. Umræða um skýrslu stjórnar og reikninga. Reikningar bornir undir atkvæði.

4. Lagðar fram tillögur um breytingu laga og reglugerða. Umræður, tillögurnar bornar undir atkvæði.

Boðaðar hafa verið tvær tillögur að breytingum, þ.e. á 6. og 7. gr. Hér má sjá nánar hvaða breytingar eru lagðar fram)

5. Stjórn leggur fram fjárhagsáætlun næsta starfstímabils ásamt tillögum um félagsgjöld. Umræður, áætlunin og tillaga stjórnar bornar undir atkvæði.

6. Kosning formanns, stjórnar og varamanns í stjórn skv. 6. gr.

7. Kosning tveggja skoðunarmanna reikninga, auk eins til vara skv. 6. gr.

8. Önnur mál.

Óskað var eftir að framboð í stjórn GL kæmi fram fyrir 15. nóvember 2023. Eftirfarandi framboð bárust.

Formaður til eins árs: Hróðmar Halldórsson.

Stjórnarmenn til tveggja ára: Ella María Gunnarsdóttir og Óli Björgvin Jónsson gefa áfram kost á sér.

Varamaður í stjórn: Ruth Einarsdóttir.

Stjórn hvetur félagsmenn að mæta og takk þátt í aðalfundinum.

Hér má finna Ársskýrslu fyrir starfsárið 2023 en þar má m.a. finna skýrslu stjórnar og nefnda, ársreikning 2023 og fjárhagsáætlun 2024.

Leynir Golf
Friðhelgis yfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.