Pokamerki og félagskírteini eru kominn í hús og eru afhent í afgreiðslu GL.  Félagsmenn GL eru vinsamlega beðnir að sækja þau þegar þeir koma næst á völlinn en almennt er þess krafist að kylfingar sýni félagsskírteinið sitt þegar þeir heimsækja aðra golfvelli og/eða staðfesta skráningu á rástíma.

Árið 2016 tókum við í notkun nýja tegund félagsskírteina með örgjörva og því þarf ekki að endurnýja þau árlega eins og áður var gert.  Þrátt fyrir ágætis kynningu á sínum tíma, þávirðist þetta hafa farið fram hjá sumum félagsmönnum.  Hægt er að fá nýtt skírteini fyrir glatað í afgreiðslu GL og er það framleitt á staðnum og kostar kr. 1.500,-.  Nýjir félagsmenn (2019) fá sömuleiðis afhent á fyrsta ári félagskírteini þegar þeir þeir sækja pokamerkið sitt.